Auglýsing | Árbakki - deiliskipulagsbreyting
Samkvæmt 3. mgr. 41. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar, vegna breytinga á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Árbakka, Árborg.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 28.04.2023, tillögu að breyttu deiliskipulagi íbúðarbyggðar í landi Árbakka, Árborg.
Bókun Bæjarstjórnar Árborgar:
Máli frestað á 17. fundi bæjarstjórnar þann 26. apríl 2023:
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi 18.1.2023, tillögu að breyttu deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Árbakka. Deiliskipulagssvæðið tekur til um 20ha svæðis. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir u.þ.b. 550 íbúðum, sem er fjölgun upp á 263 íbúðir frá gildandi deiliskipulagi. Þær skiptast í grófum dráttum þannig að tæplega 20% íbúðanna verða í sérbýli, og rúmlega 80% íbúðanna verða í fjölbýlishúsum.
Gert er ráð fyrir íbúðabyggð með almennum íbúðum, þ.e. íbúðir í fölbýlishúsum, raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum. Einnig er gert ráð fyrir lóð undir leikskóla.
Deiliskipulagsbreytingin er í samræmi við gildandi Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036
Tillagan hefur verið auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í Fréttablaðinu, Dagskránni og Lögbirtingarblaði 25. janúar 2023, með athugasemdafresti til 8. mars 2023. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar.
Umsagnir og athugasemdir bárust frá eftirtöldum umsagnaraðilum:
Landsneti, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni, Eldvarnareftirliti Brunavarna Árnessýslu, RARIK og Minjastofnun.
Þá bárust athugasemdir og ábendingar frá Tómasi Ellert Tómassyni, Hreini Óskarssyni, Sæunni I. Sigurðardóttur, Birni Baldurssyni, Hildi Hödd Stefánsdóttur og Arnari Páli Arnarsyni.
Tekin hafa verið saman í skjali tillögur að svörum til þeirra sem gáfu umsagnir og þeirra sem gerðu athugasemdir, og hafa skipulagsgögn verið uppfærð til samræmis við það. Helstu athugasemdir og ábendingar frá umsagnaraðilum og einstaklingum eru talin upp hér að neðan.
Helstu atriði umsagnaraðila:
Helstu athugasemdir Umhverfisstofnunar varða loftmengun og loftgæði. Ábendingar Vegagerðarinnar snéru að málsetningum að byggingarreitum, og hljóðvörnum, auk flóðavarna með nýjum Suðurlandsvegi. Rarik nefnir loftlínur á svæðinu. Minjastofnun tekur fram að fornleifum stafi ekki hætta af framkvæmdum, með tilvísun í skýrsu Byggðasafns Árnesinga "Aðalskráning fornleifa í Árborg". Ábendingar og athugasemdir Tómasar Ellerts Tómassonar snéru að: 1. Flóðahættu 2. Grundun og byggingarhæfi deiliskipulagssvæðisins 3. Loftgæði 4. Hljóðvist 5. Hæð og stærðir fjölbýlishúsa Ábendingar og athugasemdir Hreins Óskarssonar: Nýtingarhlutfall lóða. Bendir á misræmi í texta varðandi flóðasvæði/kjallara, sem er ekki heimilt í gildandi Aðalskipulagi Árborgar. Gerir athugasemd við hæðir húsa, þær séu ekki í samræmi við t.d. deiliskipulag Grænuvalla. Bendir á jarðlög lóðar við Árveg. Lýsir yfir áhyggjum af umferðarþunga inn í hverfið og áhrif á núverandi byggð. Ábendingar og athugasemdir Sæunnar I. Sigurðardóttur og Björns Baldurssonar: Lýsa yfir áhyggjum af umferðarálagi og hæð húsa á svæðinu. Ábendingar og athugasemdir Hildar Hödd Stefánsdóttur og Arnars Páls Arnarsonar: Gera athugasemd við lóðina Þórisvað 2, hæð húss, og hugsanlega fjölda íbúða. Einnig lýsa þau áhyggjum af umferðarálagi. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir í bréfi dags 28.4.2022 vegna fyrri auglýsingar á deiliskipulagsbreytingu fyrir Árbakka, þar sem komu fram ábendingar um að auglýsa þyrfti tillöguna að nýju. Að ósamræmi væri við þágildandi Aðalskipulag Árborgar vegna hæðar húsa á svæðinu. Að heppilegt væri að áfangaskipta uppbyggingu svæðisins. Bent er á aðgengi við Selfosslínu 1, vegna fyrirhugaðra áforma um niðurrif hennar. Þá er bent á atriði er varðar bílakjallara, og samræmi þeirra við Aðalskipulag Árborgar. Loks er bent á að þar sem ekki liggi endanleg hönnun á Suðurlandsvegi og vægi hans í flóðavörnum, sé ekki ljóst hvort vegurinn muni virka sem flóðavörn. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna og tillögu að svörum við athugasemdum.
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls. Viðbrögð Bæjarstjórnar Árborgar við athugasemdum Skipulagsstofnunar: Bæjarstjórn Árborgar bendir á að Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, hefur tekið gildi og er tillagan nú í samræmi við það. Fyrirliggjandi tillaga gerir ráð fyrir áfangaskiptingu og verður ekki hafist handa við síðari hluta svæðis fyrr en raflínur hafa verið fjarlægðar. Þá er ekki gert ráð fyrir bílakjöllurum í tillögunni. Varðandi þjóðveg 1, sem flóðavörn, er ljóst að nýr Þjóðvegur liggur hátt í landinu og mun hafa áhrif á flóðavarnir á svæðinu. Ekki hafa verið gerðar mælingar eða líkön á virkni vegarins m.t.t til hugsanlegra flóða á svæðinu.
Bæjarstjórn Árborgar þakkar fyrir innsendar umsagnir og ábendingar/athugasemdir frá umsagnaraðilum og einstaklingum. Bæjarstjórn samþykkir samantekt af svörum og viðbrögð sem hafa verið sett upp í skjali sem fylgigagn með skipulagsgögnum. Bæjarstjórn Árborgar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43.gr. skipulagslaga, og felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 42. gr. sömu laga. Þá felur Bæjarstjórn skipulagsfulltrúa að svara þeim sem gáfu umsagnir og þeim sem gerðu athugasemdir.
Tillagan er samþykkt með 6 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista og Á-lista, bæjarfulltrúar S-lista og B-lista sitja hjá undir atkvæðagreiðslu. Sigurjón V. Guðmundsson, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun: Í ljósi athugasemda við deiliskipulag það sem hér er til umfjöllunar leggja undirrituð til að í öllum samningum sem snúa að framkvæmdum á deiliskipulagssvæðinu verði tryggt að sveitarfélagið Árborg muni ekki verða fyrir ófyrirséðum kostnaði vegna mengunar, hávaða, flóðahættu eða af öðrum þáttum sem óvissa er um. Meðan ekki liggur fyrir hvaða aukakostnaður getur fallið á sveitarfélagið Árborg vegna umhverfisaðstæðna á umræddu deiliskipulagssvæði sitjum við hjá við afgreiðslu deiliskipulagsins. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, bæjarfulltrúi S-lista. Arnar Freyr Ólafsson, B-lista leggur fram eftirfarandi bókun: Í ljósi núverandi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Árborgar þá teljum við í Framsókn að innheimta þurfi innviðagjöld af íbúðabyggð í landi Árbakka. Sér í lagi þegar um er að ræða aukningu frá fyrri byggingaráformum um 263 íbúðir. Arnar Freyr Ólafsson, bæjafulltrúi B-lista og Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi B-lista. Hlé gert á fundi kl. 16:13. Fundi fram haldið kl. 16:20.