Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árborg var haldin í Vallaskóla þriðjudaginn 13. mars síðastliðinn.
Lokakeppnin er samstarfsverkefni grunnskólanna og Skólaþjónustu Árborgar og hefur undirbúningur staðið yfir frá Degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl.
Á undirbúningstímabilinu fá allir nemendur 7. bekkja grunnskóla sveitarfélagsins þjálfun í vönduðum upplestri
Í hverjum skóla fór fram undankeppni og eru það sigurvegarar hennar sem taka þátt í stóru upplestrarkeppninni. Að þessu sinni voru keppendur 10 talsins.
Stóra upplestrarkeppnin fór þannig fram að keppendur lásu þrisvar sinnum, í fyrstu umferð var lesið textabrot úr bókinni Hetja eftir Björk Jakobsdóttur, næst voru lesin valin ljóð eftir Braga Valdimar Skúlason og í þriðju umferð lásu nemendur ljóð sem þau völdu sjálf.
Kynnar keppninnar voru sigurvegarar síðasta árs þær Anna Metta Óskarsdóttir úr Vallaskóla sem var þá í 1. sæti og Rán Ægisdóttir úr Sunnulækjarskóla sem var í 2. sæti
Milli upplestranna var boðið upp á glæsilegt tónlistaratriði frá hljómsveitinni Dýrð sem er skipuð nemendum úr samvali Vallaskóla og Sunnulækjarskóla.
Dómnefndina skipuðu þau Hrund Harðardóttur, Sveinn Ægir Birgisson, Sigríður Pálsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir og María Ósk Ólafsdóttir og var nefndinni mikill vandi á höndum við dómarastörfin þar sem keppendur voru mjög vel undirbúnir og stóðu sig allir með stakri prýði.
Sigurvegari keppninnar í ár var Halldór Steinar Benjamínsson úr Vallaskóla, í öðru sæti var Úlfur Darri V. Sigurðsson úr Vallaskóla og í þriðja sæti var Hildur Eva Bragadóttir úr Sunnulækjarskóla.
Sigurvegurum og keppendum sem og skólunum er óskað til hamingju með glæsilega keppni og flottan árangur.
Það er ljóst að unga fólkið í Árborg á framtíðina fyrir sér.